Frjáls og opinn hugbúnaður / Open Source 

Opin kerfi - Frjáls og opinn hugbúnaður

Icelandic-IS

Námskeið vorönn 2012

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Red Hat Training Partner

Nú er vorönn ársins 2012 að hefjast. Finna má námskeið við flestra hæfi sem vilja kynnast eða skerpa kunnáttu sína í Linux.

Vantar þig aðstoð við að velja? Þú getur farið í gegnum námskeiðs matsform Red Hat til að aðstoða þig við valið.

Nýtt námskeið, Red Hat Linux Villugreining, hefur verið bætt við.

 

Námskeið Kennari Lengd í dögum Verð kr. Dags.
Red Hat Linux kerfisstjórnun I Tómas Edwardsson 5 265.000 6. - 10. feb 2012
Red Hat Linux kerfisstjórnun II Richard Allen
4 235.000 27. feb - 1. mars 2012
Red Hat Linux kerfisstjórnun III Tómas Edwardsson 4 235.000 12. - 15. mars 2012
Red Hat RHCE Hraðnámskeið Tómas Edwardsson 4 235.000 23. - 26. apríl 2012
Red Hat Linux Villugreining NÝTT Tómas Edwardsson 4 235.000 8. - 11. maí 2012
RHCSA próf Richard Allen hálfur 32.000 2. mars, 16. mars og 27. apríl 2012
RHCE próf Richard Allen hálfur 40.000 16. mars og 27. apríl 2012

Smelltu hér til að ganga frá skráningu!

 

Nýjungar í Red Hat Enterprise Linux 6

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú hafa Red Hat gefið út nýja útgáfu af flaggskipinu sínu, Red Hat Enterprise Linux. Framfarir hafa átt sér stað á öllum sviðum, allt frá ræsingu, netkerfi og upp í grafísk viðmót. Samfara þessu hafa Red Hat uppfært námsefnið og hófu Opin kerfi kennslu í febrúar á þessari nýju útgáfu. Hér fyrir neðan eru gerð skil á helstu breytingum í stýrikerfinu.

Linux kjarninn

RHEL6 er byggt á linux 2.6.32 og er mælst til þess að fólk nýti sér 64-bita (x86_64) útgáfuna. Helstu breytingar eru stuðningur við 4096 örgjörva og 64TB af minni, svokallaður Tickless kjarni sem veitir mikinn orkusparnað og betri nýtingu á vélbúnaði. Einnig er hægt að „hot“ bæta við minni og örgjörvum á þar til gerðum vélbúnaði og auðvitað á sýndarvélum í KVM. Auk þess hefur verið skipt í Completely Fair Scheduler (CFQ) sem eykur viðbragð stýrikerfisins mikið.

Lesa meira...
 
 

HP hugbúnaður í yum og apt formi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HP hefur sett upp hugbúnaðarsafn fyrir yum (Red Hat) og apt (Debian) sem gerir hugbúnaðaruppfærslur og viðhald mun einfaldara en áður var í gegnum Proliant Support Pack. Uppsetning er hæfilega einföld.

Náð í bootstrap.sh:

wget http://downloads.linux.hp.com/SDR/downloads/bootstrap.sh

Lesa meira...
 

Remove MailScanner advertisement

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

MailScanner (www.mailscanner.info) is a great tool when fighting spam and viruses. For some reasons they have included an advertise in their reports. These reports are sent to users on many occasion for example when a attachment has failed filename rules. The advertise is:

"For all your IT requirements visit: http://www.transtec.co.uk"

This text is included in the reports under /etc/MailScanner/reports and to replace you need to go into many files and remove or replace this text. To make this easier we have a little script to help you with that:

http://ks.ok.is/scripts/remove-transtec.pl

 

Lesa meira...
 


Síða 1 af 2