Opin kerfi hafa um árabil haft (mis)fríðan flokk sérfræðinga í innleiðingu og ráðgjöf opinns hugbúnaðar. Við höfum boðið fram stuðning við Linux stýrikerfið frá árinu 1996. Samstarf Opinna kerfa og Red Hat hófst formlega árið 1999. Við höfum ekki sofið á verðinum í þessum efnum og í dag skörtum við stærsta hóp sérfræðinga sem sérhæfa sig í opnum hugbúnaði. Við höfum fundið fyrir talsverði vakningu í áhuga á opnum hugbúnaði og höfum við eflt kynningarstarf okkar á honum og er þessi vefur hluti af þeirri vinnu.
Þegar er komið talsvert efni um þær lausnir sem við bjóðum viðskiptavinum upp á og mun það vaxa með tíð og tíma.
