Red Hat Kerfisstjórinn I (RH124) er hannað fyrir starfmenn í upplýsingatækni sem vilja kynnast Linux og vilja öðlast grunn færni í Red Hat Enterprise Linux. Áhersla er lögt á algeng kerfisstjórnarverk. Þetta námskeið er verkefnamiðað, gefur nemendum tækifæri á að prófa sig áfram, eiga samskipti og byggja umræður til að tryggja hámarks skil á þekkingu. Þar að auki er kennt á grafísk tól til að byggja á núverandi tækniþekkingu nemenda. Farið er yfir lykil hugmyndafræði skipanalínunnar til að skapa grunn fyrir nemendur sem vilja gerast Linux kerfisstjórar í fullu starfi. Við lok fimm daga námskeiðsins eiga nemendur að geta framkvæmt uppsetningu stýrikerfis, nets, átt við diskkerfið og séð um grunn þætti öryggisstillinga.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Ætlað fyrir:
* Microsoft Windows kerfisstjóra sem þurfa að tilleinka sér grunnfærni í Red Hat Enterprise Linux
* Kerfisstjóra, netstjóra og aðra starfsmenn í upplýsingatækni sem þurfa færni í leysa grunn verkefni í Linux.
* Starfsmenn í upplýsingatækni án Linux færni sem vilja gerast Linux kerfisstjórar að fullu starfi.
Forkröfur:
* Reynsla af kerfisstjórn er kostur, en ekki þörf.
Innifalið:
* 5 dagar af margslunginni þjálfun í Red Hat Enterprise Linux
* Æfingar með aðstoð leiðbeinanda
* Hádegisverður
* Ein vinnustöð á nemanda
* Red Hat varningur
Smelltu hér til að fá sendan tölvupóst um hvenær næsta námskeið er haldið!



