Red Hat kerfisstjórnun II (RH134) er ætlað fagfólki sem stefnir að vottun í Enterprise Linux kerfisumsjón. Námskeiðið er framhald af Red Hat kerfisstjórnun I og er byggt á sömu hugmynda- og aðferðafræði. Þetta námskeið er verkefnamiðað, gefur nemendum færi á að leysa sértæk verkefni, eiga samskipti og byggja umræður til að tryggja hámarks skil á þekkingu. Nemendur byggja ofan á þá grunnþekkingu sína á skipanalínunni til þess að kafa dýpra ofan í Red Hat Linux og víkka færni sína í Linux kerfisumsjón. Þegar þessu fjögurra daga námskeiði er lokið munu nemendur búa yfir færni til þess að hafa umsjón með skráarsniðum, diskstýringum, aðgengi og réttindum og geta bilanagreint eftir bestu aðferðum. Nemendur sem sækja Red Hat kerfisstjórnun I & II eru að fullu undirbúnir til þess að takast á við Red Hat Certified System Administration (RHCSA) prófið.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Ætlað fyrir:
* Fagfólk sem hefur sótt Red Hat kerfisstjórnun I
* Starfsmenn í upplýsingatækni án Linux færni sem vilja gerast Linux kerfisstjórar að fullu starfi.
Forkröfur:
* Red Hat kerfisstjórnun I
* Staðfesting á þekkingu má fá með því að standast rafræna forkröfukönnun: http://www.redhat.com/explore/pre-assessment
Innifalið:
* 4 dagar af margslunginni þjálfun í Red Hat Enterprise Linux
* Æfingar með aðstoð leiðbeinanda
* Hádegisverður og hressing fyrir og eftir hádegi
* Ein vinnustöð á nemanda
* Red Hat varningur
Smelltu hér til að fá sendan tölvupóst um hvenær næsta námskeið er haldið!



