Frjáls og opinn hugbúnaður / Open Source 

Opin kerfi - Frjáls og opinn hugbúnaður

Icelandic-IS
Forsíða Námskeið Red Hat Red Hat Kerfisstjórinn II

Red Hat Kerfisstjórinn III

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Red Hat kerfisstjórnun III með RHCE prófi (RH255) er hannað fyrir reynda Linux kerfisstjóra sem vilja skerpa á netumsjónar- og öryggisþekkingu sinni. Á námskeiðinu leysa nemendur verkefni sem samræmast þeim sem reyndir Linux kerfisumsjónarmenn leysa daglega. Mikil áhersla er lögð á að bæta færni nemenda í að stilla, innleiða og hafa umsjón með netþjónustum á borð við DNS, Apache, SMTP og deilingu gagna á neti. Auk þess er lögð áhersla á vöktun, pakkasíur, aðgangsstýringu og SELinux. Við lok þessa fjögurra daga námskeiðs munu nemendur hafa öðlast þá þekkingu og hæfni sem þarf til þess að öðlast RHCSA og RHCE vottun. Bæði prófin eru innifalin í námskeiðinu.

Er þetta eitthvað fyrir þig?

Ætlað fyrir:
* Reynda Linux kerfisstjóra sem vilja skerpa á netumsjónar- og öryggisþekkingu sinni
* Linux fagmenn með RHCT/RHCSA vottun sem vilja ná RHCE vottun
* Linux kerfisstjórar sem hafa þekkinguna til þess að öðlast RHCT/RHCSA vottun en hafa ekki staðist prófið að loknu Red Hat kerfisstjóranum III

Forkröfur:
* RHCSA hraðnámskeið eða Red Hat kerfisstjórinn I & II
* Sambærileg reynsla á við RHCSA hraðnámskeið
* Þekking til þess að öðlast RHCT/RHCSA vottun
* Staðfesting á þekkingu má fá með því að standast rafræna forkröfukönnun: http://www.redhat.com/explore/pre-assessment


Innifalið:
* 4 dagar af margslunginni þjálfun í Red Hat Enterprise Linux
* Æfingar með aðstoð leiðbeinanda
* Hádegisverður og hressing fyrir og eftir hádegi
* Ein vinnustöð á nemanda
* Red Hat varningur

Smelltu hér til að fá sendan tölvupóst um hvenær næsta námskeið er haldið!