Það hefur lengi verið vitað að open source hugbúnaður sé bæði hagkvæm og traust ákvörðun í netþjónum en svo virðist sem nýlega hafi orðið sprengja í umtali á opnum hugbúnaði á útstöðvum. Nýlega tók ég saman í kollinum lista yfir open source hugbúnað sem hvað mest hefur verið talað um og komst að skemmtilegri niðurstöðu. Áður fyrr mátti segja að open source flaggskipin væru:
- Linux
- Redhat
- Apache
- PHP/Mysql
- Bind
- Sendmail
Allt eru þetta dæmi um hágæða hugbúnað sem er margbúinn að sanna sig í enterprise umhverfum en það sem kom mér mest á óvart hvað það eru mörg ný open source flaggskip sem valda umtali á desktopinum:
- Zimbra
- Asterisk
- Firefox
- Thunderbird
- Ekika
- Azureus/Vuze
- VLC
- Ubuntu (og afbrigði af því)
- OpenOffice
Það sem ég tek eftir er að flest þessara atriða eru forrit fyrir desktopið, þau eru cross-platform og þau eru (umdeilanlega) best í sínum flokki. Í mínum augum þá eru þetta nokkur dæmi af mörgum þar sem svo skemmtilega vill til að besti hugbúnaðurinn er oft líka opensource.
Ég hef heyrt marga gegnum tíðina segja að þeim finnist það vera ákveðinn 'gæðastimpill' fyrir hugbúnað að hann sé open source, en þá er vitnað í það að almenna reglan sé að hugbúnaðurinn geri vel það sem hann eigi að gera og samfélagið sé mjög öflugt í að þjónusta hugbúnaðinn ókeypis.