Frjáls og opinn hugbúnaður / Open Source 

Opin kerfi - Frjáls og opinn hugbúnaður

Icelandic-IS

Zimbra á íslensku

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Unnið hefur verið hörðum höndum að þýðingu Zimbra yfir á íslensku og er staða þýðingar orðin mjög góð. Ég hef útbúið skeljarscript sem sér um að setja inn og uppfæra Zimbra þýðingu.

Forritið

#!/bin/bash
(
cd /opt/zimbra/jetty/webapps/zimbra/WEB-INF/classes/messages
for i in AjxMsg I18nMsg ZaMsg ZhMsg ZmMsg ZMsg
do
    rm -f $i""_is.properties*
    wget http://opensource.ok.is/static/$i""_is.properties
done

cd /opt/zimbra/conf/msgs
rm -f ZsMsg_is.properties
wget http://opensource.ok.is/static/ZsMsg_is.properties
)

Einnig er hægt að nálgast hana hér. Ég set hana í /usr/local/bin/update-zimbra-trans.sh

Uppfært sjálfvirkt daglega

Miðað við Red Hat eða CentOS þá þarf að búa til skrá í /etc/cron.d/, t.d. /etc/cron.d/update-zimbra-trans, innihald hennar:

36 0 * * * root /usr/local/bin/update-zimbra-trans.sh &> /var/log/zimbra-trans-update

Þetta mun keyra uppfærslu 0:36 daglega á þýðingu.

Endurræsa Zimbra

Hægt er að keyra service zimbra restart til að endurræsa þjóninn með nýjum stillingum. Þá væri hægt að bæta inn /etc/cron.d/update-zimbra-trans eftirfarandi til að endurræsa sjálfvirkt:

0 1 * * * root /sbin/service zimbra restart

Komið!

Að þessu loknu ætti þetta að vera tilbúið.