Frjáls og opinn hugbúnaður / Open Source 

Opin kerfi - Frjáls og opinn hugbúnaður

Icelandic-IS
Forsíða Samfélagið Greinar Tómas Edwardsson Nýjungar í Red Hat Enterprise Linux 6

Nýjungar í Red Hat Enterprise Linux 6

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú hafa Red Hat gefið út nýja útgáfu af flaggskipinu sínu, Red Hat Enterprise Linux. Framfarir hafa átt sér stað á öllum sviðum, allt frá ræsingu, netkerfi og upp í grafísk viðmót. Samfara þessu hafa Red Hat uppfært námsefnið og munu Opin kerfi hefja kennslu í febrúar á þessari nýju útgáfu. Hér fyrir neðan eru gerð skil á helstu breytingum í stýrikerfinu.

Linux kjarninn

RHEL6 er byggt á linux 2.6.32 og er mælst til þess að fólk nýti sér 64-bita (x86_64) útgáfuna. Helstu breytingar eru stuðningur við 4096 örgjörva og 64TB af minni, svokallaður Tickless kjarni sem veitir mikinn orkusparnað og betri nýtingu á vélbúnaði. Einnig er hægt að „hot“ bæta við minni og örgjörvum á þar til gerðum vélbúnaði og auðvitað á sýndarvélum í KVM. Auk þess hefur verið skipt í Completely Fair Scheduler (CFQ) sem eykur viðbragð stýrikerfisins mikið.

Ræsing

RHEL6 ræsingin er nú í höndum Dracut og Upstart í stað Mkinitrd og Sysvinit en kerfisstjórar finna litla breytingu í yfirfærslu á milli kerfanna. Markmið þessara breytinga er að hraða ræsingu og að byggja ræsiferlið meira á einingum (Modular).

Sýndarvélar

Kernel Virtual Machines (KVM) koma í stað Xen. Ástæða þessa breytinga er meðal annars sú að Xen tæknin þótti of flókin, ásamt því að KVM var samþykkt af Linux verkefninu og þar af leiðandi hluti af Linux kjarnanum en Xen er úti í kuldanum. Sýndarvélar í KVM keyra sem þjónusta í stýrikerfinu sem gerir það að verkum að auðvelt er að tryggja "high availability" með Red Hat Cluster Suite.

Diskkerfi

Nýtt skráakerfi sem RHEL6 styður er ext4 sem er hraðvirkara en fyrirrennarar þess og skalast upp í allt að 16TB. Hvað varðar tengimöguleika þá er kominn stuðningur við FCoE og iSCSI. LVM sýndardisktæknin er nú komin með stuðning við fjögurra diska speglun. Sjálfvirkt er séð til þess að "partition alignment" sé rétt uppsett og hefur það mjög jákvæð áhrif á afköst.

Minnistæknin

Kernel Samepage Merging (KSM) er tækni sem sér til þess að finna eins minnissvæði í vinnsluminni og losa upp allt sem tvíteki er. Þetta nýtist mjög vel með KVM þar sem mörg stýrikerfi sem keyra á sama þjóni hafa eins minnissvæði.

Þetta eru bara nokkur þeirra fjöldamörgu breytinga sem finna má í Red Hat Enterprise Linux 6.

Nánar á http://www.redhat.com/rhel/server/features/benefits.html