LDAP Directory lausnir gera fyrirtækjum kleift að geyma ýmsar upplýsingar miðlægt um starfsemina, svo sem:
- Notendur og hópa
- DNS Skilgreiningar
- Prentarastillingar
- Almennar stillingar forrita
LDAP þjónar eru eitt að lykilpúslum sem til þarf til að geta keyrt miðlæga auðkenningu og vinnur mjög vel saman með kerberos fyrir SSO (Single Sign On).
Helstu útgáfur af Directory þjónum sem við höfum sérhæft okkur í eru:
Red Hat / Fedora Directory Server
Red Hat / Fedora Directory Server er þrautreyndur LDAP þjónn sem hentar smáum sem stórum.
- Öflug samtenging gagna milli þjóna (up to 4 way multi-master replication), mynd til hægri
- Kerfisstjórn fer fram í gegnum forrit sem hægt er að keyra óháð stýrikerfum (java)
- Auðveldlega hægt að skilgreina hvaða notandi hefur aðgang að hvaða gögnum
- Samtenging við Microsoft Active Directory
OpenLDAP
OpenLDAP er í hraðri þróun og eru ýmsar viðbætur til fyrir hann sem ekki finnast annarsstaðar.
- Mest notaði LDAP þjónninn í opnum hugbúnaði
- Einfaldur í uppsetningu
- Styður fjölföldun gagna milli openldap þjóna (replication)
- Bíður upp á alls kyns framenda og bakenda viðbætur svo sem geymsla gagna í gagnagrunnum
Vantar þig ráðgjöf við val á lausn eða um innleiðingu?
Opin kerfi bjóða upp á ráðgjöf og rekstur á Red Hat / Fedora Directory Server og OpenLDAP
Hefurðu áhuga á kynningu eða viltu fá frekari upplýsingum? Sendu inn fyrirspurn!



