Opin kerfi hafa starfrækt þjálfunarsetur fyrir Red Hat Linux- stýrikerfið hér á landi síðan árið 2000 en það stýrikerfi er notendavæn útgáfa af Linux-stýrikerfinu. Viðurkenningin þýðir að fyrirtækið hefur, eitt fyrirtækja hér á landi, leyfi til að halda Red Hat-námskeið og útskrifa sérfræðinga í Red Hat Linux-stýrkerfinu með RHCE og RHCSA gráður (Red Hat Certified Engineer/System Administrator). Red Hat var stofnað árið 1994 og byggir starfsemi sína á sölu sérútgáfu sinnar af Linux, þróun þess og þjónustu við notendur. Samstarf Opinna kerfa og Red Hat hófst af alvöru í upphafi árs 1999 og hefur síðan vaxið verulega.

RH124 - System Administrator I
RH134 - System Administrator II
RH255 - System Administrator III
RH299 - Rapid Track RHCE
Smelltu hér til að fá sendan tölvupóst um hvenær næsta námskeið er haldið!

Námskeið

