Frjáls og opinn hugbúnaður / Open Source 

Opin kerfi - Frjáls og opinn hugbúnaður

Icelandic-IS
Forsíða Samfélagið Greinar Tómas Edwardsson
Tómas Edwardsson

Nýjungar í Red Hat Enterprise Linux 6

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Nú hafa Red Hat gefið út nýja útgáfu af flaggskipinu sínu, Red Hat Enterprise Linux. Framfarir hafa átt sér stað á öllum sviðum, allt frá ræsingu, netkerfi og upp í grafísk viðmót. Samfara þessu hafa Red Hat uppfært námsefnið og hófu Opin kerfi kennslu í febrúar á þessari nýju útgáfu. Hér fyrir neðan eru gerð skil á helstu breytingum í stýrikerfinu.

Linux kjarninn

RHEL6 er byggt á linux 2.6.32 og er mælst til þess að fólk nýti sér 64-bita (x86_64) útgáfuna. Helstu breytingar eru stuðningur við 4096 örgjörva og 64TB af minni, svokallaður Tickless kjarni sem veitir mikinn orkusparnað og betri nýtingu á vélbúnaði. Einnig er hægt að „hot“ bæta við minni og örgjörvum á þar til gerðum vélbúnaði og auðvitað á sýndarvélum í KVM. Auk þess hefur verið skipt í Completely Fair Scheduler (CFQ) sem eykur viðbragð stýrikerfisins mikið.

Lesa meira...
 

HP hugbúnaður í yum og apt formi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HP hefur sett upp hugbúnaðarsafn fyrir yum (Red Hat) og apt (Debian) sem gerir hugbúnaðaruppfærslur og viðhald mun einfaldara en áður var í gegnum Proliant Support Pack. Uppsetning er hæfilega einföld.

Náð í bootstrap.sh:

wget http://downloads.linux.hp.com/SDR/downloads/bootstrap.sh

Lesa meira...
 

Zimbra á íslensku

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Unnið hefur verið hörðum höndum að þýðingu Zimbra yfir á íslensku og er staða þýðingar orðin mjög góð. Ég hef útbúið skeljarscript sem sér um að setja inn og uppfæra Zimbra þýðingu.

Forritið

#!/bin/bash
(
cd /opt/zimbra/jetty/webapps/zimbra/WEB-INF/classes/messages
for i in AjxMsg I18nMsg ZaMsg ZhMsg ZmMsg ZMsg
do
    rm -f $i""_is.properties*
    wget http://opensource.ok.is/static/$i""_is.properties
done

cd /opt/zimbra/conf/msgs
rm -f ZsMsg_is.properties
wget http://opensource.ok.is/static/ZsMsg_is.properties
)

Einnig er hægt að nálgast hana hér. Ég set hana í /usr/local/bin/update-zimbra-trans.sh

Lesa meira...
 

Færsla sýndarvéla úr Xen í KVM

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

Ég kláraði nýlega flutning Xen gesta yfir í KVM á RHEL 5. Flutningur var ekki alveg jafn sársaukalaus og ég hafði vonað þannig að ég ákvað að skirfa upp skrefin sem til þurfti. Að sjálfsögðu að þá mæli ég með að fólk prófi þetta á prufuumhverfi áður en haldið er í mikilvægustu sýndarvélarnar!

Yum UPDATE!

Fyrsta sem þarf að gera er að keyra yum update, ef að það klikkar þá munu initrd vera röng. Gerðu þetta ÁÐUR en þú skiptir um sýndartækni (XEN/KVM). Ef þú vilt ekki eða getur ekki uppfært alla pakka þá þarftu að minnsta kosti að uppfæra eftirfarandi pakka:

yum update lvm2 mkinitrd ecryptfs-utils 

Settu kjarnatýpuna sem þú ætlar að nota

/etc/sysconfig/kernel, replace kernel-xen with kernel

DEFAULTKERNEL=kernel

Skipta í paravirtualized rekla

Breyttu /etc/modprobe.conf og stilltu í virtio reklana

alias eth0 virtio_net
alias scsi_hostadapter ata_piix
alias scsi_hostadapter1 virtio_blk

Serial virkni

Fjarlægðu úr /etc/inittab xen stýriglugga (console? :) með venjulegum serial stýriglugga (xvc -> ttyS0) þannig að mögulegt sé að fá upp virsh console

Fjarlægðu:

co:2345:respawn:/sbin/agetty xvc0 9600 vt100-nav

með:

co:2345:respawn:/sbin/agetty ttyS0 115200 vt100-nav

Sjáðu einnig til þess að kjarninn sendi úttak í serial útganginn með því að bæta við 3 aukalínum ef þær eru ekki til staðar fyrir:

/etc/grub.conf ofarlega:

#splashimage=(hd0,0)/grub/splash.xpm.gz
hiddenmenu
serial --unit=0 --speed=115200 --word=8 --parity=no --stop=1
terminal --timeout=10 serial console

Also you need to change the kernel line for each title to enable serial console output for the kernel

Þú þarft einnig að passa upp á að kjarninn sjálfur sendi úttak á serial

console=ttyS0,115200

Fjarlægðu console=xvc0 ef það er fyrir inni, mér finnst líka gott að taka út rhgb og quiet

Leyfa root að skrá sig inn í gegnum serial console'inn

ttyS0

Uppfæra kjarnann

yum update kernel

Fjarlægja gamla Xen kjarnann

yum remove kernel-xen

Nú ættirðu að geta keyrt niður sýndarvélina, skipt um sýndartækni, þ.e. Xen -> KVM og gesturinn ætti að ræsa sig eðlilega svo lengi sem þú skilgreinir virtio rekla þegar þú skilgreinir vélina í virsh.

Síðast uppfært Miðvikudagur, 26. Maí 2010 09:59
 

Cobbler og Puppet til bjargar!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Til hvers?

Margir kannast við það að vera með 20 vélar og stillingar á milli véla eru hvergi eins og breytingar á hlutum eins og DNS stillingum, NTP, auðkenningu getur tekið ægilegan tíma.

Uppskriftir spara tíma

Hugsaðu þér að vera með 8 vefþjóna, það kemur álagstoppur vegna greinar á slashdot, guð minn góður, þarna var tækifærið og ég missti af því! Ef að lagt er í að nota Cobbler og Puppet uppskriftir þá getur þetta verið jafn einfalt og að keyra nokkrar skipanir, bíða í 20 mínútur og þú ert komin með níunda þjóninn. Vinnan við að búa til stillingarnar tekur oftast meiri tíma, stundum talsvert meiri tíma. En gildið við að eiga endurnýtanlegt stillingaset er mikið.

Yfirsýn

Ef að unnið er þannig að allar stillingar eru geymdar í Puppet þá ertu komin með yfirlit yfir allar breytingar sem hafa verið gerðar á stillingum á netþjóninum. Þetta gerir uppfærslur og viðhald vélanna gegnsærra og auðveldara.

Cobbler fyrir stýrikerfisuppsetningar

Cobbler er öflug lausn sem sér um uppsetningu Linux stýrikerfa.

  • Styður bæði RPM (Fedora/Red Hat) og Debian (Ubuntu) byggð stýrikerfi.
  • PXE netuppsetningar ásamt uppsetningum af tækjum svo sem geisladiskum, usb...
  • Uppsetningar á járni og sýndarvélum
  • Samtenging við Puppet fyrir meðhöndlun stillinga og hugbúnaðarpakka

Endilega skelltu inn fyrirspurn og við höfum samband!

 


Síða 1 af 2